CoreData býður Reiknistofu bankanna velkomna

Það gleður okkur að tilkynna að Reiknistofa bankanna (RB) hefur bæst við vaxandi viðskiptavinahóp okkar innan fjármálageirans.  Reiknistofa bankanna er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni fyrir íslenskar fjármálastofnanir.

RB er traust og öflugt þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem hefur þróað hinar ýmsu fjármálalausnir en helstu viðskiptavinir fyrirtækisins eru fjármálafyrirtæki og vátryggingafélög. Hlutverk Reiknistofu bankanna er að vera lykilsamstarfsaðili sem skapar virði fyrir viðskiptavini sína með rekstri og þróun öruggra innviða fyrir fjármálamarkaðinn. 

Hlutverk CoreData felur í sér að gera Reiknistofu bankanna kleift að skipuleggja gögn sín og skrár og koma þeim undir einn hatt í einni stafrænni skrifstofu. 

Með því að setja upp skjalastjórnunarkerfi sem er með upplýsingaöryggisvottunina  ISO/IEC 27001 getur RB skipulagt og varðveitt viðkvæm viðskiptagögn sín og uppfyllt íslenskar kröfur um skjalastjórnun og skjalavörslu. 

„Skjalastjórar bera ábyrgð á því að stjórna upplýsingum sem berast og skjölum sem verða til í fyrirtækinu á nákvæman, öruggan og skilvirkan hátt. Að geta búið til skjalakerfi sem er sérsniðið að þörfum okkar, þar sem við getum geymt skrárnar sem á að varðveita fyrir Þjóðskjalasafn, er hluti af burðarás fyrirtækisins og er ég ánægð með að vinna með CoreData.“

Hulda Valsdóttir, skjalastjóri hjá Reiknistofu bankanna

„Við erum einstaklega stolt af því að reynsla okkar í skjalaskipulagi, skýjageymslu og skjalastjórnun hafi leitt til þessa nýja og spennandi samstarfs við RB. Við erum einnig heppin að fá tækifæri til að vinna með RB þar sem þau hafa skýra sýn í skjalastefnu sinni sem CoreData getur aðstoðað við“

Helga Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri sölu og viðskiptasviðs CoreData

Um Reiknistofu bankanna

RB annast upplýsingatækniþjónustu fyrir íslenska fjármálabanka og stofnanir. RB hefur þróað greiðslujöfnunar- og uppgjörskerfi á Íslandi og margar kjarnalausnir fyrir banka sem flestir íslensku bankarnir nota. RB rekur einnig rafrænt innheimtu- og greiðslukerfi fyrir fyrirtæki og almenning. 

RB er í eigu þriggja helstu íslensku bankanna, tveggja sparisjóða, Sambands íslenskra sparisjóð og þriggja helstu greiðslukortaaðila á íslandi.

 

Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú skilmála okkar um vafrakökur. Við notum vefkökur til að bæta notendaupplifun þína og auka vinnsluhraða síðunnar.